Halló halló, mér finnst vera kominn tími á blogg af minni hálfu svo að ég ætla að reyna mitt besta núna.
Tyrkland: Þetta var mögnuð ferð og mikið djammað
Við komum á hótelið um 02:00 á staðartíma. Það fyrsta sem við gerðum meðan við vorum að bíða eftir seinni rútunni sem innihélt farangur okkar og herbergisfélaga (Thelmu og Dóra) var að fá okkur einn kaldan kokteil
og Sex on the beach varð fyrir valinu
Þetta var svo bara chill kvöld. Annað kvöldið var svo eitt skemmtilegasta kvöldið. Þá fórum við næstum allir krakkarnir á Tyrkneskt kvöld á hótelinu okkar. Við fengum hlaðborð og meðan á matnum stóð voru allskonar show í gangi. Í lokin fórum við MK-ingarnir að dansa og enduðum á að dansa allir dansa kónga útaf hótelinu og löbbuðum öll niður í bæ saman syngjandi íslensk lög. Þegar á Bar street var komið fórum við saman á einn skemmtistað þar sem var dansað uppá pöllum og að lokum í bullandi froðu

Svo var auðvitað farið á bar street flest kvöld eftir þetta, ýmist syngjandi eða dansandi
Á fimmtudeginum var svo farið í bátsferð þar sem við tönuðum allan daginn ásamt því að hoppa út í sjóinn ýmist af fyrstu hæðinni, annarri eða á efstu hæð. Ég lagði bara í að hoppa af annari hæð, en það var geðveikt gaman að hoppa og svamla í sjónum.
Á laugardeginum 18. Ágúst á menningarnóttinni sjálfri var sundlaugardjamm á hótelinu okkar. Við fengum að hafa sundlaugina opna til 00:00 og fengum frítt áfengi í tvo tíma ásamt mat af hlaðborði tyrkneska kvöldsins sem var hinum megin á hótelinu. Á þessu skemmtilega kvöldi tók Dóri á það ráð að henda mér úti. Ég semsagt sat í makindum mínum við borðið þegar Dóri og Alli lyfta mér upp á stólnum og hvolfa mér af stólnum útí laug í öllum fötunum. Ég verð reyndar að viðurkenna að þetta var svoldið fyndið og eftir þetta byrjaði mikið stríð, allir að henda öllum útí, en ég ákvað bara að skella mér í bikiní og hoppa útí laug. Þetta kvöld endaði að sjálfsögðu niðri á bar street. 

Seinasta kvöldið okkar héldum við svo á einkaströnd. Þar fengum við enn einn hlaðborðsmatinn, og frítt áfengi eftir smá tuð við barþjónana. Þar voru svo veitt verðlaun t.d. fyrir dólg ferðarinnar, róna ferðarinnar, tan ferðarinnar, frú marmaris, herra marmaris o.fl. =) það kvöld endaði með því að við fórum klst fyrr af einkaströndinni vegna ósættis við barþjónana og djömmuðum niðri á bar street.

Þetta voru svona helstu kvöldin, en hér á eftir ætla ég að fylgja fordæmi annarra og koma með stikkorðalista yfir það sem stóð uppúr hjá mér allavegana
Kokkteilar með stjörnuljósi og öllum pakkanum
Fishbowl það var aðalmálið.
Herbergi 106 besta herbergið á hótelinu, maurar, brotinn hurðarhúnn =)
Steinun the bartender.
Date-ið mitt, já Arnar strákur sem ég kynntist úti bauð mér út að borða svo gengum við eftir strandgötunni og svona.

Supermarkaðurinn hinum megin við götuna, þangað fór maður á hverjum degi.
Tyrkneskt bað, himneskt, eitthvað sem allir verða að prufa.
Galleón.
High end.
Crazy Daisy.
Veitingastaðirnir Spoon og Oyes.
Vatnsrennibrautagarðarnir.
Vatnspípa.
McDonalds.
Crazy leigubílstjórar.
Fótboltakvöldin.
Tyrkneskukvöldin.
Póker.
Bátsferðin.
Drykkjuleikurinn í herbergi 404... held það sér rétt herbergisnúmer
Og margt margt fleira. Takk allir fyrir awesome ferð ;*

Kata 
E.S. Betra er að blogga seint en að blogga aldrei 
E.E.S. Telma er farin frá okkur til Englands, Bournemouth
Ég saakna hennar, Telma ég sakna þín
ég skal reyna að vera duglegri að blogga svo þú getir fylgst með okkur Elínu hérna á klakanum
koss og knús til þín Telma ;*
Myndir úr ferðinni eru að finna á myndir.ekkert.is/kata 